mér hefur gegngið ágætlega ég viktaði mig í gær og heil 7,1 kg farin og enn 2 dagar eftir af mániðunum frá því ég viktaði mig, svo þetta gengur bara vel þar allaveganna. fór í ræktina í dag í 45 mín bretti, 15 mín æfingar og 40 mín í sjúkraþjálfun. svo ég er sátt með það, fór einnig í gær í svipaðann tíma nema ekki í sjúkraþjálfun. svo mæti ég í fyrramálið líka
í hvert skipti sem ég fer í ræktina þá geng ég á bretti í 40-50 mín á 4,5-5,2 km hraða ég er að ganga f´ra 3-4 km fer eftir hraða og mín í heildina
ég tek aðeins á mataræðinu. ég borða leið og ég vakna eitthvað smá til að koma brennslunni af stað en er oftast ekkert svöng þegar ég vakna svo ég verð að pína smá ofaní mig.
yfir daginn gengur maturinn misjafnlega, stundum borða ég reglulega svo á e´g til að gleyma mér svolítið og borða ekkert eða eitthvað sem er fljótlegt einsog brauð, ég er að borða alltof mikið af brauði það er alveg á hreinu hehe ég borða ekkert nammi nema einn dag í viku (föstud. eða laugard.) fyrir 200-400 kr max
ég fór nú fyrr í þetta átak eða breyttan lífstýl einsog ég vil kalla það

ég ætlaði að bæta ræktinni ínni svona framm að mánaðarmótum og svo taka á mataræðinu í febrúar svo ég er að gera það svolítið fyrr enda er mataræðið 70% af þessu sem þarf að gera

það sem ég þarf að gera á næstu dögum er að taka mataræðið betur í gegn og borða réttar yfir daginn sem sagt oftar en minna í einu, ég er að borða alltof sjaldan yfir daginn, ég þarf að bæta meira sundi inní eða göngu úti (ekki í ræktinni) til að fá sma´fjölbreytni í þetta

ég þarf og VERÐ að passa betur lyfin mín, ég er alltaf að gleyma að taka þau inn og skipta þau miklu máli fyrir heilsuna mína.
ástæðan að ég ætla mér að gera þetta er að ég hef svo gott lið með mér núna, ég hef breytt um lífstýl áður og missti 17,7 kg á einu ári en svo hrundi líkaminn meira svo ég gat lítið gert og tók það allan vind úr mér, ég byrjaði að fitna aftur og í raun bara gaf upp móðinn.
nú er ég enn sterkari og veit hvað ég er að fara útí og hef svo rosalega góðan sjúkraþjálfara sem hvetur mig áfram og veit alveg hvað hann er að gera við líkamann minn. ég hef ekki verið með svona litla verki í langann tíma

svo það er bara magnað. ég sef betur en vanalega sem er bara draumur.
einnig er maðurinn minn farinn að taka sig á og þess vegna er allt auðveldara fyrir mig, það var ekki svo auðvelt fyrst
ég þurfti að horfa uppá manninn minn um daginn borðandi namma, saltstangir með ídýfu, heilann popp poka og gos fyrir framan nefið á mér!!! harðfisk með smjöri um miðja nótt (01:30)
það er ekkert grín sko, þurfa að horfa á aðra borða það sem þeim þykir gott, íbúðin angandi í popplykt og hvað þá þegar maður er á blæðingum líka

þá verður maður pirraður það er alveg á hreinu enda varð ég snældu vitlaus af tillitleysinu.
ekki myndi hann drekka fyrir framan mig ef ég væri alki !!! ekki myndi hann dópa fyrir framan mig ef ég væri í neyslu !!! svo ekki skal hann éta sælgæti fyrir framan konu á túr OG í átaki !!!!!
og hana nú hehehehheheh
þetta er það sem mér þykir erfiðast, fara í búð án þess að geta keypt mér nammið sem er í öllum sjónarhornum, svo snyrtilega raða fyrir framan nefið á mann,svo rosalega girnilegt og freystandi.
fara í bónus og sniðganga nammirekkann.
EN ég hef staðist þetta hingað til og ætla mér að gera það áfram. mér tókst meira að segja að kaupa á föstudaginn sitthvort súkkulaðið handa okkur hjónunum og litla kúlupoka (2 stk) án þess að fylla körfuna af sætindum hahaha
eigið góðan dag elskurnar